Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag
15.11.2007 | 16:22
Hvað er í gangi eiginlega ?
Stofna félag um náttúruauðlindirnar á Reykjanesi | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
6.7.2007 | 23:11
Er þetta ekki þjóðvegur ?
Ég bara spyr hver er eigandi af ferjunni Herjólfi og hvað er eiginlega málið með að fá greiðslur frá vegagerðinni .Fær útgerðin ekki greiðslur frá þeim notendum sem nota Herjólf .
Hættið þessu bulli og gerið bara það sem þarf að gera til að fólk komist skammlaust á milli lands og eyja og það strax .Þetta er þjóðvegur sem greinilega þarf að laga svo hann geti tekið við allri þeirri umferð sem um hann fer .nóg er nú borgað í vega tolla svo ekkert hangs og lagið þetta .
Slitnar upp úr viðræðum um aukaferðir Herjólfs | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
28.6.2007 | 09:24
rányrkja sjávararins
Það er opinbert leyndarmál meðal fiskveiðimanna að til að veiða 400 tonn af frystum fiski þarf að veiða 1000 tonn af fiski upp úr sjó .þá hlýtur maður að spyrja hvað varð af þeim 600 tonnum sem eftir eru ?
Það eru sterkar líkur á því að þeim hafi verið fleygt aftur í hafið þá yfirleit dauðum . 'eg veit ekki hversu margir frystitogarar eru í landinu og hlýt því að koma með ágiskanir um hversu mikið hver togari er að henda miklu í sjóinn Ef reiknað er með að um 14 daga sjóferðir er um ræða þá mundi þetta gera 25 túrar á ári og að meðaltali komi þeir með 400 tonn að landi þá eru þeir að veiða 25000 tonn úr hafi en koma einungis með að landi 10.000 tonn .og það sem er hent í sjóinn eru 15000 tonn af fiski þá undirmálsfiski . þetta eru hrikalegar tölur .þetta er einungis ágiskannir um 1 togara hvað þá allan þann fjölda sem er á veiðum .
Svo eru menn að hjakkast í Hafrannsókn um að hafi ekki komið með réttar tölur um stofnstærðir
Hvernig í ósköpunum á hún að geta unnið rétt ef útgerðafyrirtæki bera ekki meiri virðingu fyrir þeim lífsgæðum sem þeim eru réttar upp í hendurnar og stunda hvílíka rányrkju í hafinu
Hvað er til ráða .Það þarf að efla landhelgisgæsluna og beita í meira mæli skyndiskoðanir í veiðiskipum og herða viðurlög við brotum all verulega þannig að það komi við menn ef þeir brjóta af sér .
Það þarf að fara út í sársaukafullar aðgerðir til að friða fiskistofna við landið og nú er lag efnahagslega séð og á ekki að hika við það .
Einnig þarf að efla rannsóknir við hafið því það er ljóst að miklar breytingar eru að eiga sér stað hvort sem það er af mannavöldum eða nátturulegar ástæður en allavega þarf að vita meira um það og leggja meiri fjármagn í þær rannsóknir .
28.6.2007 | 08:51
Sparnaður ?
Það er skrýtið að fá ekki að setja upp 1 stól til að vinna fyrir sér þó að í íbúðabyggð sé að ræða
ekki þarf þá fólkið sem býr í götunni þá að borga fyrir ferð til að komast í hárklippingu .
Getur verið að hún sé ekki réttu meginn í pólitík ,það að Gunnari lýki ekki við hana ?
Umsókn um hárgreiðslustól hafnað | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
30.5.2007 | 08:06
rusl og aftur rusl
'eg var að lesa í vf um að fólk hefði hent rusli hjá mánagrund í Keflavík.
ég átti ekki orð til að lýsa hneykslunn minni ,hvað er fólk að hugsa sem hendir rusli bara sí svona á lóðir annara manna ,ef það þá hugsar yfirleitt ,ég er hræddur um að heyrðist hljóð í horni ef fólk vaknaði einn góðann daginn með heimilissorp eða sófum í garðinum hjá sér .
Frekjan og yfirgangurinn hjá sumu fólki er yfirgengileg hugsar bara um sjálft sig skiftir ekki máli þó nágranninn þurfi að hreinsa upp eftir það fólk .
Af hverju er ekki hægt að henda rusli þegar að kalka er opinn það er nú ekki eins og venjulegt fólk þurfi að borga fyrir að fara með rusl á sorpeiðingarstöðvar ,nei af því það hendar mér ekki þá er ekki hægt að fara með rusl á opnunnartíma .þetta flokka ég undir frekju og tillitleysi gagnvart því fólki sem þó reynir að halda snyrtilegu í kringum sig .
Hvað varðar flokkun sorps ætti fólk að gera meira af. Ég fékk mér tunnu þar sem ég get flokkað rusl og hefur reynst auðvelt að gera það en mætti samt vera duglegri í því ,ég hvet fólk til þess að flokka heimilissorp og fá til þess gerðar tunnur til að henda í .
23.4.2007 | 10:09
hvað er fólk að hugsa ?
Afar merkilegt þykir mér að sjá fylgisaukningu sjálfstæðisflokkinn sem hefur verið þögull sem gröfin síðan að Davíð yfirgaf flokkinn og allt sem miður hefur farið hefur framsóknarflokkurinn þurft að svara fyrir ,'eg held að fólk sé ansi fljót að gleyma .
Hver er staða tannheilsu barna í dag ?,
Hver er staða geðveikra í dag ?,hver er staða aldraða í dag ?,
hvar eru loforðinn um að rafmagn myndi ekki hækka með breytingu á landsvirkjun með stofnun landslínu ?
Hvers vegna eru vextir að hækka og hækka? ,Fyrir hverja eru stjórnarmenn að starfa þá ríku eða fyrir landsmenn alla ?,
ég undrast fylgi sjálfstæðisflokksins ,sá hræðsluáróður að nota sitt atkvæði á vissa flokka sé að henda atkvæðinu er rangt ,þannig virkar lýðræði ekki, ber að ávíta þá menn sem láta slíkt út úr sér sem sýnir örvæntingafulla tilraun til að hafa áhrif á kjósendur með sitt val samkvæmt sinni sannfæringu .
13.2.2007 | 09:46
Rútubílstjórar
alla atvinnubílstjóra ganga .
Finnst mér það skrýtið að sá sem hefur keyrt strætó í umferðinni í Reykjavík eða annars staðar á landinu allan daginn geti eftir það hoppað upp í Hópferðabíl og haldið áfram að keyra eins og ekkert Sé .
Leigubílstjórar geta eftir að hafa verið að keyra alla nóttina hoppað upp í hópferðabíl og haldið áfram að keyra eins og ekkert sé .
Leigubílstjórar sem náð hafa 70 árum verða að hætta keyra leigubíl en geta hoppað upp í hópferðabíl og keyrt eins og ekkert sé .
'I dag hafa allar reglur verið hertar varðandi hvíldartíma og sektir hafa verið hertar
og missa menn nú einnig punkta verði mönnum á að skrifa eilítið vitlaust á skífurnar sem ég vona að detti út hið fyrsta .þe.komi kort í stað skífna í öll atvinnutæki
Það ER ljóst að möguleiki okkar atvinnubílstjóra til að vinna okkur inn meiri tekjur hafa verið skertar og það ER ljóst að við munum reyna að sækja í komandi samningum .
Enn fyrst og fremst ER það óréttlæti að mönnum Sé mismunað eftir því hjá hverjum menn vinna og þarf að nema í burt allri undanþágu frá lögum um hvíldartíma bifreiðastjóra og einnig eiga þessi lög að ná yfir leigubílstjóra .
Þegar verið er að tala um hertar reglugrðir finnst mér skjóta skökku við að hægt er að taka rútupróf
áður en tekið er próf á vörubifreiðar .Þarna finnst mér vanta inn í reglugerð um lágmarksaldur og lágmarksreynsla af öðrum stórum bifreiðum s.s 24 ára til að fá rútupróf og að minnsta kosti 2 ára reynsla af akstri vörubifreiða .
Eins og er víða í kringum okkur .
Stjórnmál og samfélag | Breytt 26.3.2007 kl. 12:49 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Um bloggið
Guðmundur Eyjólfur Jóelsson
Tenglar
Mínir tenglar
- Make Money Online blog síða hvernig menn græða peninga á netinu
- Go Green Lýsing á vöru sem á að spara eldsneyti
- Netvinnu yfirlit Mögulegur árlegur 6 tölu hagnaður á netinu
- Niche Profit Classroom Kennsla á uppsetningu á vef ásamt möguleika að vinna heima
Bloggvinir
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (16.1.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 6
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 6
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar