23.4.2009 | 09:10
Lífeyrissjóðir of margir
Almennu lífeyrissjóðirnir eiga að tryggja fólki örugga afkomu við starfslok. Með því að greiða í lífeyrissjóð öðlast fólk mikilvæg réttindi. Lífeyrissjóðurinn tryggir fólki ellilífeyri eftir að störfum lýkur og allt til æviloka. Hann tryggir þeim sem þurfa að hætta vinnu vegna sjúkdóms eða slyss örorkulífeyri. Þá fá maki og börn greiddan lífeyri ef fyrirvinna deyr. |
En gera þeir það? Lífeyrir sjóðir hafa runnið saman jafnvel nokkrir skipt um kennitölu ,hvers vegna hefur það gerst ? Hef fyrir því heimildir að fólk hafi borgað í ákveðinn lífeyrissjóð hundruði þúsunda krónur og þegar athugað var hversu mikinn rétt hann/hún átti þá hafði sá réttur ekkert hækkað ,þegar gerðar voru athugasemdir var Honum/henni nánast sparkað út ? Leitað var eftir aðstoð hjá formanni BSRB var hann tilbúinn að skoða málið og virtist áhugasamur en ekkert hefur frést af málinu .Einnig hef ég heimildir fyrir því að fólk sem hefur ætlað að fara ofan í saumanna á þessum málum hafi fengið hótanir og þær svo svæsnar að fólk hafi ekki treyst sér til að halda áfram .
Þetta er með öllu ólíðandi að fólk geti ekki athugað hvað er í gangi hjá þeim sem stjórna þessum miklu peningum
Í landsambandi lífeyrisjóða eru 33 sjóðir með eignir upp á 1.689.304.544 árið 2007.
Stærstir eru LSJ starfsmanna ríkisins með 18,76 % eigna þá Lsj verslunarmanna með 15,93 %
Þriðji stærsti er Gildi-lífeyrissjóður með 14,10% eigna af þessum 33 sjóðum ,margir af þessum sjóðum eru ekki virkir og maður spyr sig
Af hverju þurfum við að vera svo marga sjóði ? er ekki einhlítt að 1 stór sjóður myndi ávaxta sig betur heldur en margir litlir sjóðir og að fólk hefði meira til elliáranna fyrir vikið .
Það er víða pottur brotinn í þessum málum það eru allt of margir sjóðir og þar af leiðandi allt of margir sem taka til sín í stjórnunnar launum,nefndar launum og hvað þetta heitir allt saman .
Það þarf að fækka sjóðum til að minnka yfirbyggingu og þar af leiðandi ætti að vera meira fyrir það fólk sem hefur borgað í sjóðinn ,einnig ætti fólkið sjálft að ráða því hverjir sætu í stjórn fyrir þeirra hönd til að ávaxta þá peninga sem það hefur borgað í sjóðinna ,það er fólkið sem á sjóðinna en ekki einhverjir útvaldir .
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Um bloggið
Guðmundur Eyjólfur Jóelsson
Tenglar
Mínir tenglar
- Make Money Online blog síða hvernig menn græða peninga á netinu
- Go Green Lýsing á vöru sem á að spara eldsneyti
- Netvinnu yfirlit Mögulegur árlegur 6 tölu hagnaður á netinu
- Niche Profit Classroom Kennsla á uppsetningu á vef ásamt möguleika að vinna heima
Bloggvinir
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (23.11.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 9
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 9
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.