Færsluflokkur: Mannréttindi

Þöggunn yfir arfaslökum samningum

Jæja er ekki búið að gera kjarasamninga og ekkert heyrist hvað í þeim felst ,er það eitthvað sem ekki má heyrast ? Er það eitthvað klúður hjá Verkalýðsforystinni.Ég hef hlerað að samningingarnir séu nú ekki eins góðir og af er látið,getur það passað að eftir 3 ár séu launinn kominn i 300.000 en takið eftir, að yfirvinna sé reiknuð af 275.000,? Er virkilega verið að blekkja fólk? Getur það verið að 20 ára og yngri séu að fá laun samkvæmd unglingataxta? Sem þyðir að 19-20 ára eru að lækka í launum fyrir sína vinnu. Er það svona sem verkalýðsfokálfar láta plata sig ? Hvers konar heimskingja háttur er þetta eiginlega? Ég er virkilega reiður þá sérstaklega fyrir það fólk sem lægst hafa launinn og þá unglinga sem eiga skerðast í launum,þetta getur bara ekki verið að fólk láti ganga yfir sig.


Heildarlaun eða dagvinnulaun lækna ?

 
Þegar fjármálaráðherra talar um heildarlaun lækna við hvað er hann að miða við hvaða taxta ,hvað liggur mikil vinna á bak við þessi rúmlega 1600.000 mánaðarlauna.?
Hvað eru margir læknar með slík laun?
Er þetta sagt til að blekkja fólkið í landinu?
Hér getur að líta taxta lækna eins og þeir eru frá 1.mars 2013.
Hvað finnst mönnum um þessi laun og þá sögn að allt fari hliðina um að semja um hækkunn launa til lækna?




Mánaðarlaun: Gildir frá 1. mars 2013

lfl 1.þrep 2.þrep 3.þrep 4.þrep 5.þrep
100 340,734
200 370,485 383,452 396,872 410,763 425,139
300 530,556 551,778 573,850 596,804 632,612
400 708,291 750,788

lfl. Röðun starfsheita
100 Kandidat
200 Læknir með lækningaleyfi
300 Sérfræðingur
400 Yfirlæknir

Við ákvörðun starfsaldur kandidats skal miða við upphaf starfs
1.þrep byrjunarlaun

Við ákvörðun starfsaldur læknis með lækningaleyfi skal miða við fyrsta dag
næsta mánaðar eftir að hann hefur lagt inn fullgilda umsókn um
lækningaleyfi hjá Landlækni eða frá og með fyrsta degi næsta mánaðar
eftir að hann lagði inn fullgilda umsókn um lækningaleyfi í viðkomandi
landi.
1.þrep byrjunarlaun
2.þrep eftir sex mánða starfsaldur
3.þrep eftir 2 ára starfsaldur
4.þrep eftir 3 árs starfsaldur
5.þrep læknir sem lokið hefur þremur árum í skipulögðu sérnámi
viðurkenndu af landlækni

Við ákvörðun starfsaldur læknis með sérfræðileyfi skal miða við fyrsta dag
næsta mánaðar eftir að hann hefur lagt inn fullgilda umsókn um
lækningaleyfi hjá Landlækni eða frá og með fyrsta degi næsta mánaðar
eftir að hann lagði inn fullgilda umsókn um lækningaleyfi í viðkomandi
landi.
1.þrep að 7 ára starfsaldri
2.þrep eftir 7 ára starfsaldur
3.þrep eftir 11 ára starfsaldur
4.þrep eftir 14 ára starfsaldur
5.þrep læknir með sérfræðileyfi sem nýtir sér ekki heimild 1.
mgr. greinar 4.1.3.


Enn og aftur um fjármögnunarfyrirtækin

Ég mátti til með að skrifa hér nokkur orð um endurreiknuðu lánin .

ólöglegt

Mér finnst alveg með ólíkindum að fjölmiðlar skuli vera hættir að fjalla um þessi svo ósanngjörnu útreikninga fjármögnunarfyrirtækja á þessum ólöglegu lánum sem þau buðu og þau voga sér að leggja vanskilagjald á sem hefur verið staðið í skilum á ,við skulum muna að það voru fjármögnunarfyrirtækin sem voru brotleg með því að bjóða saklausum lántakendum gengistryggð lán sem svo reyndust vera ólögleg og þau eru látinn óáreitt með það að leggja vanskila gjald á greiðslur sem eru ekki til og flest fólk stóð í skilum svo allt í einu eru reiknuð vanskilagjald á greiðslur sem eru ekki til og komu til vegna þess að fjármögnunarfyrirtækin veittu ólögleg lán og hefðu aldrei komið til ef þau hefðu staðið löglega að málum þegar lánin voru veitt .

Það er með öllu óskiljanlegt að fólk sem fékk ólögleg lán án þeirra vitundar árið 2007 skuli vera skuldlaust við fyrirtækið og hafa eignast bílinn en þau sem fengu þessi ólöglegu lán 2006 skuli en skulda stórar fjárhæðir en samt hafa borgað lengur ,hvernig í ósköpunum fær þetta staðist nema fyrir það að það fólk sem fékk þessi ólöglegu lán 2006 hafa borgað mun lengur og meira í vanskilavexti af því sem búið var að borga og átti alls ekki von á því að þurfa að borga vanskilavexti af engu. Fjármálafyrirtækin virðast ætla að komast upp með þennan þjófnað af grandalausu fólki sem tók á móti ólöglegum lánum sem þessi fyrirtæki vissu að voru ólögleg.

Fólk almennt hefur ekki efni á því að fara í mál og fá úr því skorið hjá dómstólum hvort það sé ólöglegt að leggja vanskilavexti á það sem búið var að borga og því að það var ekki lántakandinn sem veitti eða vissi að hann samþykkti ólöglega gjörninga af hálfu fjármögnunarfyrirtækja. Ég er vel sáttur við vextina sem voru ákveðnir af hálfu dómstóla en er mjög ósáttur við að þurfa að borga vanskilavexti af því sem ég taldi mig vera búin að borga og satt best að segja skil ekki að ekki skuli vera meira um þetta fjallað af fjölmiðlum ,ég skora á fjölmiðla og aðra sem hafa einhvern mátt að taka þessi mál upp því í raun er þetta stórmál .Það er alveg með ólíkindum að fjármögnunarfyrirtækin skuli komast upp með þennan gjörning þegjandi og hljóðalaust .

Enn og aftur vek ég athygli á því að það voru fjármögnunarfyrirtækin sem buðu saklausum lántakendum lán sem svo reyndust vera ólögleg sem svo aftur leiddi til þess að endureikna þurfti upp öll lán og það á ekki að vera hlutur lántakenda að borga vanskilavexti af því sem búið er að borga eða vanskilavexti af því sem átti eftir að borga því það voru þessi fyrirtæki sem veittu þessi lán og ég spyr hvernig átti Jón og Gunna að vita að þau væru að gera eitthvað ólöglegt og það ætti eftir að koma í höfuðið á þeim seinna meir.Þetta er sanngirnismál ég er ekki að fara fram á fella niður vexti sem ákveðnir voru af hæstarétti heldur finnst mér að ég eigi ekki að þurfa borga vanskilavexti ,í því liggur ósanngirnin og tel ég fjármögnunarfyrirtækin vera að stela af saklausum borgurum .nóg var nú fyrir .


Um bloggið

Guðmundur Eyjólfur Jóelsson

Höfundur

Guðmundur Eyjólfur Jóelsson
Guðmundur Eyjólfur Jóelsson
Ef ég sé óréttlæti og slóðahátt læt ég vita af því ásamt því að vilja gera það sem ég get til að gera þjóðfélagið betra .
Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Nýjustu myndir

  • Hús sem hugmyndir er að kaupa
  • Vatnsdrykka
  • ...drekka_vatn
  • Veikur maður
  • Svona vildi ég sjá stæði við Leifstöð

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.3.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku:
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku:
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband